05/08/2026
Hreyfidagatal sem hægt er að nota ár eftir àr
Hreyfidagatalið „Æfing dagsins“ er þróað af sjúkraþjálfurunum Hildi Aðalbjörgu Ingadóttur og Svandísi Björk Guðmundsdóttur fyrir hönd Félags sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu og nýtur stuðnings Landssambands eldri borgara, Félags sjúkraþjálfara og Farsællar öldrunar – þekkingarmiðstöðvar.
Hugmyndin að verkefninu kviknaði út frá þörf sem höfundar hafa orðið varir við í starfi sínu með eldra fólki. Sá hópur sem hreyfir sig minnst og er jafnframt viðkvæmastur fyrir færniskerðingu, byltum og heilsufarslegum hnignun á oft erfiðast með að hefja hreyfingu.
Markmiðið var að skapa leið sem byggir á þeirri hugmynd að lítil hreyfing á hverjum degi getur haft veruleg jákvæð áhrif til lengri tíma.
Með hreyfidagatalinu er leitast við að lækka þröskuldinn inn í hreyfingu með því að bjóða upp á eina einfalda æfingu á dag, sem er byggð á faglegri þekkingu og vísindalegum grunni sjúkraþjálfunar. Þannig fá notendur örugga og raunhæfa leið til að auka hreyfingu smám saman og á eigin forsendum.
Um er að ræða A5 gormabók sem er sett upp eins og dagatal, þar sem hver dagur inniheldur eina æfingu með skýrum leiðbeiningum og myndum. Boðið er upp á auðveldari og erfiðari útfærslur til að mæta mismunandi getu notenda. Dagatalið er margnota og hægt að nota ár eftir ár án þess að þörf sé á sérstökum búnaði.
Skipulag æfinga tekur mið af mikilvægustu forvarnarþáttum í öldrunarþjónustu, með áherslu á styrk og jafnvægi sem lykilþætti í að draga úr byltuhættu og viðhalda færni. Auk þess eru æfingar sem styðja við liðleika, samhæfingu, slökun og andlega heilsu.
Vikunni er skipt eftirfarandi:
• Mánudagur - styrkur
• Þriðjudagur – jafnvægi
• Miðvikudagur - styrkur
• Fimmtudagur - liðleiki/úthald/fræðsla/heilaleikfimi
• Föstudagur - styrkur
• Laugardagur - jafnvægi
• Sunnudagur - teygjur/slökun/nudd/raddþjálfun
Við óskum höfundum innilega til hamingju með vandað og flott verkefni!
Hægt er að kaupa eintök af Hreyfidagatalinu á vef LEB og sækja á opnunartíma skrifstofu, virka daga milli kl 9:00 og 12:00.
Hvert eintak kostar 9.900 kr.
Sjá hlekk í athugasemdum.