Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) var stofnað árið 1919, og er félagið bæði fag- og stéttarfélag. Formaður félagsins er Guðbjörg Pálsdóttir.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) er félagið bæði fag- og stéttarfélag. Megintilgangur félagsins er að:
Efla þróun hjúkrunar og þekkingu og hæfni hjúkrunarfræðinga. Gæta hagsmuna og standa vörð um sjálfstæði, réttindi, skyldur og kjör hjúkrunarfræðinga. Semja við vinnuveitendur um kaup og kjör fyrir félagsmenn og um önnur atriði sem samningsumboð félagsins nær til á hverjum tíma. Auka þátt hjúkrunarfræðinga í þróun og stefnumótun hjúkrunar- og heilbrigðisþjónustu.

Tími breytinga runninn upp - Háskóli Íslands (HÍ), Háskólinn á Akureyri (HA) og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) ...
05/08/2026

Tími breytinga runninn upp - Háskóli Íslands (HÍ), Háskólinn á Akureyri (HA) og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) telja tímabært að breyta námi til starfsréttinda hjúkrunarfræðinga í fimm ára nám sem skiptist í þriggja ára B.S.-nám og tveggja ára meistaranám. 🔗Hlekkur á grein í bio

Það er komið út 🌸 Tímarit hjúkrunarfræðinga 2.tbl. 2026. 102. árgangur.Það mun berast inn um lúgur félagsfólks næstu dag...
27/07/2026

Það er komið út 🌸 Tímarit hjúkrunarfræðinga 2.tbl. 2026. 102. árgangur.
Það mun berast inn um lúgur félagsfólks næstu daga, fullt af fróðleik og skemmtun 🍀

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga lagði árið 2024 áherslu á að eiga opið samtal við félagsfólk sitt um dánaraðstoð. Miki...
11/07/2026

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga lagði árið 2024 áherslu á að eiga opið samtal við félagsfólk sitt um dánaraðstoð. Mikilvægur liður í þeirri vinnu var hjúkrunarþing félagsins sem fór fram í október það ár undir yfirskriftinni „Hjúkrun við lok lífs“.

Yfir 200 hjúkrunarfræðingar tóku þátt í þinginu, ýmist á staðnum eða í streymi, þar á meðal fulltrúar nær allra fagdeilda félagsins. Upptökur af erindum voru jafnframt aðgengilegar í þrjá mánuði eftir þingið og á þeim tíma gafst hjúkrunarfræðingum áfram kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Fjölmargir nýttu sér það tækifæri.

Dagskrá þingsins var fjölbreytt og lögð var rík áhersla á að fá fram ólík sjónarmið og rök varðandi dánaraðstoð. Auk fræðsluerinda fóru fram umræður og vinnustofur þar sem þátttakendur ræddu málefnið og sjónarmið þeirra voru skráð.

Í kjölfarið voru öll sjónarmið og umræður tekin saman og greind. Úrvinnslan leiddi fram fimm meginþemu sem hafa síðan verið mikilvægur grunnur að afstöðu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga til dánaraðstoðar.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga áréttar að gæta þurfi varfærni við túlkun niðurstaðna stakra megindlegra kannana um jafn flókið og viðkvæmt málefni og dánaraðstoð. Félagið hvetur alla sem hafa áhuga á málefninu til að kynna sér niðurstöður Hjúkrunarþings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 2024, þar sem fram koma þau sjónarmið og sú vinna sem liggur til grundvallar afstöðu félagsins til dánaraðstoðar. Hlekk á niðurstöðurnar má finna í athugasemdum.

Undanfarið hefur umræða um dánaraðstoð á Íslandi verið áberandi. Málefnið snertir grundvallarspurningar um sjálfræði einstaklingsins, hlutverk heilbrigðisstarfsfólks og hvernig samfélagið vill standa að umönnun fólks við lífslok.

11/06/2026

LÝÐHEILSUHVATNING TIL STJÓRNVALDA
Breiðfylking heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka hvetja alþingismenn og ráðherra til að standa með samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um einkasölu ÁTVR á áfengi. Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra veitti hvatningunni viðtöku í dag, 11. júní 2026.
🔗Lesa má frétt og hvatninguna í heild sinni á vef Fíh - hlekkur í athugasemdum

Orlofsuppbót á að vera greidd út með launum 1. júní. Gott getur verið að aðgæta á launaseðli hvort orlofsuppbót hafi ekk...
04/06/2026

Orlofsuppbót á að vera greidd út með launum 1. júní. Gott getur verið að aðgæta á launaseðli hvort orlofsuppbót hafi ekki örugglega skilað sér. Lesa má nánar um orlofsuppbót skv. gildandi kjarasamningum á vef Fíh. 🔗í athugasemd.

Fundað með efnahags- og viðskiptanefnd í Smiðju um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Frá vinstri: Magnús Þór Jón...
28/05/2026

Fundað með efnahags- og viðskiptanefnd í Smiðju um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Frá vinstri: Magnús Þór Jónsson (Kennarasamband Íslands), Sonja Ýr Þorbergsdóttir (BSRB), Helga Rósa Másdóttir (Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga) og Hrannar Már Gunnarsson (BSRB).

Í nýjasta þætti Rapportsins er rætt við Auði Guðjónsdóttur hjúkrunarfræðing og baráttukonu 🎧 Hlusta á þáttinn 👇
28/05/2026

Í nýjasta þætti Rapportsins er rætt við Auði Guðjónsdóttur hjúkrunarfræðing og baráttukonu

🎧 Hlusta á þáttinn 👇

Gestur Rapportsins er Auður Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur, baráttukona og formaður Mænuskaðastofnunar Íslands.

Við vekjum athygli á Nordic Lung Congress 2026, þverfaglegri ráðstefnu sem haldin verður í Hörpu 3.-5. júní næstkomandi ...
27/05/2026

Við vekjum athygli á Nordic Lung Congress 2026, þverfaglegri ráðstefnu sem haldin verður í Hörpu 3.-5. júní næstkomandi

Fagdeild lungnahjúkrunar sér um tvær málstofur og á hlut í þeirri þriðju

Hægt er að skrá sig á vef ráðstefunnar, þar má einnig finna ítarlega dagskrá 👇

Welcome to the 52nd Nordic Lung Congress in Reykjavik, Iceland, June 3rd-5th 2026. The venue will be Harpa Concert Hall in the city center of Reykjavik.

Halla Hrund Arnardóttir hjúkrunarfræðingur er fararstjóri í ferð fyrir hjúkrunarfræðinga til Suður-Ítalíu í október næst...
26/05/2026

Halla Hrund Arnardóttir hjúkrunarfræðingur er fararstjóri í ferð fyrir hjúkrunarfræðinga til Suður-Ítalíu í október næstkomandi

Nánar um ferðina 👇

Gönguferð aðeins fyrir hjúkrunarfræðinga til Suður-Ítalíu skipulögð af Úrval Útsýn. Átta dagar af náttúru, menningu og matarupplifun á Suður-Ítalíu.

Address

Suðurlandsbraut 22
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 10:00 - 16:00
Tuesday 10:00 - 16:00
Wednesday 10:00 - 16:00
Thursday 10:00 - 16:00
Friday 10:00 - 12:00

Telephone

+3545406400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga:

Shortcuts

Share