05/08/2026
Það finnast enn fordómar í samfélaginu og það eru ekki allir jafn heppnir varðandi viðbrögð frá fjölskyldu, vinum og fólki almennt í nærumhverfi. Hræðsla við einangrun eða jafnvel útskúfun getur valdið því að hinsegin einstaklingur leiti sér ekki hjálpar af ótta við hvernig aðrir munu bregðast við.
Þessi hindrun getur vaxið ef að:
Einstaklingur hefur ekki komið fram opinberlega sem hinsegin.
Einstaklingurinn tilheyrir trúarlegu samfélagi.
Einstaklingurinn er í kúgandi heimilisumhverfi.
Mikilvægt er að muna að lögreglan, heilsugæslur, Landspítalinn og aðrir aðilar sem þú getur leitað til eru allir bundnir þagnarskyldu og þú getur farið til þeirra og fengið aðstoð
Ofbeldi er aldrei ásættanlegt og það er ávallt aðstoð að fá!