03/06/2026
Gretar Bjornsson formaður Hugarafls heimsótti Morgunvaktina´á rás tvö í morgun. Gunna Dís og Atli tóku vel á móti honum. Grétar kynnti þann merkilega árangur sem Hugarafl hefur að undanförnu náð með starfi sínu og komið hefur fram í rannsóknum m.a. Gallup síðan 2025. Gunnar Úlfarsson hagfræðingur hefur nýlega skilað af sér skýrslu um virðisgildi Hugarafls og ávinningur starfs Hugarafls er gríðalegur eða um tæplega hálfur milljarður árlega.
Grétar ræddi um innra starf og sína reynslu. Hann sagði einnig frá því að 86% þeirra sem sækja til Hugarafls líður illa eða mjög illa. Hann ræddi einnig að þau sem fara í sjálfsvinnu hjá samtökum og geta fundið sín bjargráð við þjáningunni ná árangri og geta eftir dvöl í Hugarafli farið til virkar samfélagsþátttöku á ný. Starfsgeta eykst, hópurinn sem gengur reglulega í gegnum sjálfsvígshugsanir minnkar og líðan verður betri eftir batavinnuna í Hugarafli.
Hvetjum ykkur til að hlusta á þeirra góða samtal og við hvetjum öll sem sinna geðheilbrigðismálum á Íslandi til að leggja við hlustir.
Ný úttekt á starfsemi Hugarafls, stærstu grasrótarsamtaka fólks með andlegar áskoranir á Íslandi, sýnir að samtökin skila samfélagslegum og opinberum ávinningi upp á um 482 milljónir króna á ári með því að styðja fólk með geðrænar áskoranir til aukinnar virkni, bata og ...