25/08/2026
Kæru vinir, við erum hreinlega orðlaus af þakklæti! ❤
Reykjavíkurmaraþonið í ár var sögulegt fyrir Ljósið, því aldrei fyrr hefur safnast jafn mikil upphæð til stuðnings starfinu okkar.
Trommusóló og brjáluð fagnaðarlæti ...... 37.958.599 kr !
Samfélagið í Ljósinu er það sem gerir starfið mögulegt og þessi mikli stuðningur gerir okkur kleift að halda dyrunum opnum fyrir öll.
„Ég er ótrúlega hrærð og full af djúpu þakklæti. Þetta er metsöfnun, aldrei áður hefur safnast jafn mikil upphæð fyrir Ljósið. Fyrir okkur er þetta fyrst og fremst falleg staðfesting á því hversu miklu máli starfsemin skiptir Ljósbera okkar og aðstandendur. Þessi stuðningur kemur á nákvæmlega réttum tímapunkti þar sem við stöndum nú í stórum og dýrum framkvæmdum við að standsetja nýja húsnæðið okkar að Gylfaflöt 5 til að geta tekið enn betur á móti fólkinu okkar. Samfélagið er það sem gerir starfið mögulegt og fyrir það erum við óendanlega þakklát. Takk öll þið sem hlupuð og þið sem eruð búin að heita á hlauparana okkar. Auk allra hinna sem komu og klöppuðu,“ segir Erna Magnúsdóttir framkvæmdastýra Ljóssins.
Við viljum senda sérstakar þakkir til þeirra sem söfnuðu mestu fyrir okkur í ár! ✨
Einstaklingar:
1. Kári Björn Baldursson - 838.567 kr
2. Sindri Már Kaldal Sigurjónsson – 670.000 kr
3. Guðmundur Breiðfjörð – 615.000 kr
4. Margrét Þórdís Hallgrímsdóttir – 6007.000 kr
5. Una Ólöf Gylfadóttir – 606.000 kr
Hópar og meðlimir:
1. Karfarnir – 1.771.000 kr
2. Team Albert – 1.517.000 kr
3. Hlauparar Avians – 1.325.901 kr
4. Ljós í minningu Elsu – 1.201.000 kr
5. Fyrir mömmu – 1.191.695 kr
Takk fyrir að vera í Ljósaliðinu ❤
https://ljosid.is/2026/08/25/oendanlegt-thakklaeti-eftir-metsofnun-i-reykjavikurmarathoninu/