Skyndi.is

Skyndi.is Skyndihjálparvörur og kennsla

Til hamingju AÍH með hjartastuðtækið ykkar. Vel gert Húsasmiðjan að velja Schiller Fred PA1 þar sem vönduð vara og áratu...
18/02/2026

Til hamingju AÍH með hjartastuðtækið ykkar.
Vel gert Húsasmiðjan að velja Schiller Fred PA1 þar sem vönduð vara og áratuga reynsla fer saman.

❤️ Húsasmiðjan styrkir AÍH um hjartastuðtæki ❤️

Á aðalfundi Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar (AÍH) í gærkvöldi afhenti Húsasmiðjan félaginu hjartastuðtæki að gjöf. Öryggi skiptir máli – sérstaklega þar sem kraftur, hraði og fjölbreyttur hópur fólks kemur saman.

AÍH er öflugt og vaxandi félag sem hyggst halda 12 viðburði á keppnissvæði sínu í Hafnarfirði á þessu ári, en tímabilið stendur frá lok apríl og fram í miðjan september. Félagið hefur byggt upp sterkt ungliðastarf síðustu ár og gefur fjölda ungmenna á aldrinum 15–17 ára tækifæri til að kynnast akstursíþróttum – reynsla sem skilar sér í öruggari og betri ökumönnum út í umferðinni.

Á keppnisdögum safnast saman nokkur hundruð manns og því er mikilvægt að hafa rétta öryggisbúnaðinn á staðnum. Hjartastuðtækið verður staðsett í félagsheimili AÍH í Hafnarfirði og mun án efa nýtast vel.

Það var mikil ánægja meðal félagsmanna með framtakið og við hjá Húsasmiðjunni erum stolt af því að geta lagt okkar af mörkum til samfélagsins. 💙

Lindu Dögg Jóhannsdóttir, fráfarandi formaður AÍH, við hjartastuðtækinu fyrir hönd félagsins.

Vinnuferð til Danmerkur að skoða vörur og vörumerki. Maskakvöld á hótelinu.
02/02/2026

Vinnuferð til Danmerkur að skoða vörur og vörumerki. Maskakvöld á hótelinu.

24/12/2025
Pílufélag Reykjanesbæjar fékk nýverið afhent hjartastuðtæki af gerðinni Schiller Fred PA1, sem er hannað til að vera ein...
19/12/2025

Pílufélag Reykjanesbæjar fékk nýverið afhent hjartastuðtæki af gerðinni Schiller Fred PA1, sem er hannað til að vera einfalt í notkun og leiðbeinir notendum á þremur tungumálum, þannig að tækið er aðgengilegt öllum. Tækið eykur öryggi félagsmanna og mun vera aðgengilegt í húsnæði félagsins. Vert er að taka fram að til staðar eru rafskaut fyrir bæði börn og fullorðna.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Jón Skúla Jónsson, formann Pílufélags Reykjanesbæjar, taka við tækinu úr hendi Guðna.

Address

Túngata, Sandgerðisbær
Sandgerði
245

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skyndi.is posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Skyndi.is:

Share