Talþjálfun Suðurlands

Talþjálfun Suðurlands Hjá Talþjálfun Suðurlands starfa talmeinafræðingar sem bjóða upp á þjálfun/meðferð við ýmsum tal-mál- og raddmeinum. Erum staðsett á 2. hæð fyrir ofan Nettó.

Hjá Talþjálfun Suðurlands starfa talmeinafræðingar sem bjóða upp á þjálfun/meðferð við ýmsum tal-, mál- og raddmeinum. Talmeinafræðingar:

Anna Stefanía Vignisdóttir
Berglind Jónsdóttir
Halla Marinósdóttir
Sigríður A. Þórðardóttir

Skjátími fullorðinna Við veltum oft fyrir okkur skjátíma barnanna okkar, en hvað með okkar eigin skjátíma? Rannsóknir sý...
19/01/2023

Skjátími fullorðinna

Við veltum oft fyrir okkur skjátíma barnanna okkar, en hvað með okkar eigin skjátíma?

Rannsóknir sýna að lengd tímans sem við eyðum við skjá skipti ekki öllu máli heldur skiptir meira máli hversu truflandi áhrif skjátíminn hefur á samskipti okkar við aðra.

08/12/2022

Málþroskaröskun (DLD) og ADHD

Börn og ungmenni með frávik í málþroska (DLD) sýna oft sömu einkenni og börn með athyglis- og einbeitingarerfiðleika. Þessi einkenni geta haft áhrif á allt nám og hegðun en eru tilkomin vegna skertrar málfærni og uppfylla þar af leiðandi ekki greiningarskilmerki fyrir ADHD.

Einkennin geta verið:
- Erfiðleikar með að fylgja fyrirmælum og endurtaka það sem sagt var.
- Erfiðleikar með að svara spurningum.
- Slök hlustun og virðast utan við sig.
- Slakur skilningur.
- Vera úti á þekju í umræðum.
- Þreytast fljótt og stutt úthald í aðstæðum sem reyna á mállega færni.
- Erfiðleikar í samskiptum og skert félagsfærni.
- Truflast auðveldlega.
- Einfaldur orðaforði.
- Samhengislaus og ruglingsleg frásögn.
- Mikið af hikorðum í samræðum.
- Langar þagnir áður en svarað er.
- Skipt um umræðuefni á óviðeigandi hátt.

Gagnleg ráð sem gagnast börnum og ungmennum með DLD og/eða ADHD

1. Ávallt að ná athygli barnsins áður en því er gefið fyrirmæli
Með því að segja nafn barnsins, ná augnsambandi, setja sig í þeirra hæð eða snerta handlegg þess blíðlega hjálparðu barninu að beina athyglinni að þér og fyrirmælunum.

2. Draga úr truflunum líkt og auðið er
Til að draga úr áreiti heima er gott að gæta þess að það sé slökkt á sjónvarpinu og öðrum tækjum á meðan rætt er við barnið. Til að draga úr áreiti í kennslustofunni er hægt að gæta þess að námsumhverfi barnsins sé snyrtilegt, vel skipulagt og að barnið sitji framarlega nálægt kennaranum.

3. Gefið einföld fyrirmæli og leiðbeiningar
Gætið þess að fyrirmæli séu eingöngu eins til tveggja þrepa. Börn með frávik í málþroska og/eða ADHD eru oft með veikleika í vinnsluminni sem gerir þeim erfiðara fyrir að halda upplýsingum í huga sér og vinna með þær. Að endurtaka, umorða og búta upplýsingar niður styður við barnið og hjálpar því að ná árangri.

4. Leiðið barnið að viðfangsefninu á jákvæðan hátt
Þegar barnið ráfar af réttri leið, minnið það blíðlega á að halda sig við gefið efni. Bendið barninu á hvað það er búið að gera, hrósið því og hvetjið það til að halda áfram með það sem er eftir.

5. Notið sjónrænt skipulagt eins oft og mögulegt er
Veitið sjónrænan stuðning bæði heima og í skóla. Stuðningurinn getur verið í formi gátlista yfir þau atriði sem þarf að klára á hverjum morgni fyrir skóla, að undirstrika dæmi í stærðfræði, búta lengri texta niður í smærri einingar, nota hugarkort til að veita heildarsýn á myndrænan hátt eða útbúa stundaskrá sem veitir yfirsýn yfir allan daginn frá því að barnið vaknar þangað til það fer að sofa.

Nýtið styrkleika barnsins í allri vinnu, vinnið út frá áhugasviði, hvetjið það áfram og hrósið óspart.

Skjátími og snjöll málörvunÍ dag hafa mörg börn töluverðan áhuga á ýmis konar skjátækjum og það er staðreynd að flest un...
21/11/2022

Skjátími og snjöll málörvun

Í dag hafa mörg börn töluverðan áhuga á ýmis konar skjátækjum og það er staðreynd að flest ung börn fá einhvern skjátíma í hverri viku. En ,,skjátími" og ,,skjátími" er ekki það sama, skjátími getur verið fræðandi gæðasamverustund barns og foreldris og þennan skjátíma er tilvalið að nýta til málörvunar.
Inni á www.malorvun.com má finna hagnýtar upplýsingar um ,,Snjalla málörvun" og heilan helling af gagnlegum verkefnum, æfingum og smáforritum á íslensku sem er hægt að nota til að efla málþroska ungra barna undir leiðsögn forsjáraðila.

https://malorvun.com/

Tilmæli Landlæknis um skjátíma ungra barna:

https://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item37136/Skj%C3%A1vi%C3%B0mi%C3%B0%200-5%C3%A1ra.pdf

Markviss málörvun leggur grunninn að farsælla lestrarnámi

Hvað er málþroskaröskun?
21/11/2022

Hvað er málþroskaröskun?

Dagur málþroskaröskunar (e. Developmental Language Disorder) var haldinn hátíðlegur föstudaginn 14. október sl. Dagurinn er mikilvægur vitundarvakningu málþroskaröskunar (DLD) því þrátt fyrir að vera algeng röskun sem hefur áhrif á nær allt daglegt líf eru enn margir sem hafa e...

,,Hversu langt tungan kemst út úr munninum er ekki mælikvarđi á tunguhaft"Of stutt tunguhaft getur haft mikil áhrif og s...
11/08/2021

,,Hversu langt tungan kemst út úr munninum er ekki mælikvarđi á tunguhaft"

Of stutt tunguhaft getur haft mikil áhrif og skert lífsgæði fólks á öllum aldri. Fjöldi barna og fullorðinna glíma við ýmsa kvilla sem má rekja til ógreinds tunguhafts.

Möguleg einkenni tunguhafts hjá eldri börnum og fullorðnum eru:

-Talar óskýrt, muldrar og á erfitt með að gera sig skiljanlega/n
-Þreytist við að tala
-Er sein/n í málþroska (í tilfelli barna)
-Sefur illa og vaknar auðveldlega/oft
-Gnístir tönnum á næturna, hrýtur eða sefur með opinn munn
-Vaknar þreyttur
-Borðar hægt eða er vandlát/ur á mat
-Kúgast eða stendur í við að borða
-Verkir á höfuð/ hálssvæði og stundum niður í bringu
-Mígreni

Möguleg einkenni tungu- og varahafts hjá ungabörnum eru:

-Mjólk drýpur úr munnviki barns við gjöf
-Grunnt grip á geirvörtu eða pela
-Smellur eða smjatt við brjóstagjöf/pela
-Hæg þyngdaraukning
-Barn hóstar eða kúgast við gjöf
-Óhófleg loftmyndun, ropi eða óróleiki
-Hrotur, hávær öndun í svefni eða munnöndun
-Bakflæði
-Magakrampar

(tekið af www.tunguhaft.is)

Hægt er að kynna sér málið betur hjá talmeinafræðingum, tannlæknum og háls-, nef- og eyrnalæknum. Sem dæmi um fagaðila með sérhæfða þekkingu á tunguhöftum má nefna Matur og Munnur og Tunguhaftssetrið.

Hversu langt tungan kemst út úr munninum er ekki mælikvarđi á tunguhaft!

Ef viđ spáum í þađ, hvenær þurfum viđ ađ nota tunguna út úr munninum?

Viđ setjum tunguna á milli tannanna til ađ mynda þ- og đ-hljóđ, ekki fram yfir varir, og þetta eru einu málhljóđin sem eru mynduđ utan munnholsins (međ tungu).

Tungan þarf ađ vera inni í munninum þegar matur er þar líka. Hún færir hann á milli og undirbýr svo hægt sé ađ kyngja honum - tungan á aldrei ađ fara út í þessu ferli.

Í eđlilegu ferli þrýstist tungan upp í góminn þegar kyngt er - hún fer ekki út. Ef tungan fer út er ferliđ óeđlilegt og þarf ađ láta skođa betur.

Þađ er ekki svo einfalt ađ fá einstakling til ađ reka út úr sér tunguna til ađ útiloka eđa stađfesta tunguhaft af því ađ notkun tungunnar er inni í munni, ekki fyrir utan! Þađ þarf ađ skođa hversu hátt tungan kemst inni í munninum og þađ þarf ađ meta færni hennar, hvernig gengur henni ađ međhöndla mat (brjóstamjólk eđa fasta fæđu), mynda málhljóđ (ef komiđ á þađ stig) og kyngja.

Aldrei verður góð vísa of oft kveðin.Gleðilega páska 🌼
31/03/2021

Aldrei verður góð vísa of oft kveðin.

Gleðilega páska 🌼

,,Félag talmeinafræðinga gagnrýnir að nýútskrifaðir talmeinafræðingar þurfi að vinna í tvö ár eftir útskrift áður en þei...
22/01/2021

,,Félag talmeinafræðinga gagnrýnir að nýútskrifaðir talmeinafræðingar þurfi að vinna í tvö ár eftir útskrift áður en þeir komast á samning hjá Sjúkratryggingum Íslands. Um 600 börn bíði eftir þjónustu og biðin sé tvö ár, en mikilvægt sé að grípa snemma inn í. “

Félag talmeinafræðinga gagnrýnir að nýútskrifaðir talmeinafræðingar þurfi að vinna í tvö ár eftir útskrift áður en þeir komast á samning hjá Sjúkratryggingum Íslands. Um 600 börn bíði eftir þjónustu og biðin sé tvö ár, en mikilvægt sé að grípa snemma inn í.

Enginn einn þáttur hefur jafn sterk og stöðug tengsl við lestur/orðþekkingu og hljóðkerfisvitund. Hljóðkerfisvitund er t...
18/09/2020

Enginn einn þáttur hefur jafn sterk og stöðug tengsl við lestur/orðþekkingu og hljóðkerfisvitund. Hljóðkerfisvitund er tilfinning og næmi einstaklings fyrir uppbyggingu tungumálsins; hvernig hægt er að greina talmál niður í smærri hljóðeiningar og hvernig vinna má með einingarnar á mismunandi vegu. Börn með lestrarerfiðleika eru yfirleitt með veikleika í hljóðkerfisvitund og því er mikilvægt að efla hana. Á plöggunum frá Fjölbreyttar kennsluaðferðir fyrir fjöruga krakka má finna skýr og góð ráð til að vinna með hljóðkerfisvitund.

Góða helgi!

Í veröld þar sem snjalltækin eru aldrei langt undan eru flestir meðvitaðir um skaðleg áhrif óhóflegrar snjalltækjanotkun...
29/07/2020

Í veröld þar sem snjalltækin eru aldrei langt undan eru flestir meðvitaðir um skaðleg áhrif óhóflegrar snjalltækjanotkunar barna. Rannsóknir hafa nú einnig sýnt fram á neikvæð áhrif snjalltækjanotkunar foreldra á máltöku og málþroska barna sinna. Þegar síminn er við hönd missum við af mikilvægum tækifærum til að eiga í yrtum og óyrtum samskiptum við börnin okkar. Leyfum okkur að setja símann á hljóðlausu stillinguna, komum honum gætilega fyrir uppi í hillu og eigum gæðastundir með börnunum okkar.

Språket hos barn vars föräldrar ofta använder digitala media utvecklas långsammare visar ett forskningsprojekt vid Linköpings universitet.

Address

Austurvegur 42
Selfoss
800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Talþjálfun Suðurlands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Talþjálfun Suðurlands:

Share