Vonarland Heilsustofa

Vonarland Heilsustofa Heilsustofa með heilsumeðferðir, þjálfun og ráðgjöf. Líkamninn er eitt það fullkomnasta "tæki" sem til er. Langvarandi verkir eru ekki eðlilegt ástand.

Ég hef óbilandi áhuga á því að laga bilaða mannslíkama. Öll stoðkerfavandamál þykja mér áhugaverð. Ég er menntuð ÍAK einkaþjálfari og útskrifast áramót 2014/2015 sem heilsunuddari frá Heilbrigðisskólanum í Ármúla.
Ég legg ríka áherslu á það nuddarar gera engin kraftaverk heldur leggja þeir eingöngu fram aðstoðina sem þarf til að líkaminn lækni sig sjálfur. Ég hef mikinn áhuga á öllu sem snýr að an

dlegum málum og hvet fólk ítrekað til að leita inn á við eftir orsök vandamálsins ef ég tel hana liggja þar. Hann er alla daga að glíma við óæskilega hegðun okkar eigin frumna, árás frá bakteríum, veirum og fleiri sýklum. Það er líkamanum mikilvægt að við höldum okkur eins mikið og hægt er frá streitumyndandi aðstæðum og takmörkum neikvæðar hugsanir vegna þess að streita eykur álagið á ónæmiskerfið og veikir það. Stoðkerfið gefur sig oft undan líkamlegu-og andlegu álagi. Líkaminn sendir okkur viðvörun þegar eitthvað er "að" og nauðsynlegt er að hlusta á þessa aðvörun og leita leiða til að bæta ástandið. Ef ég tel mig ekki vera að ná tilætluðum árangri með mína viðskiptavini þá hvet ég þá eindregið til að leita annað því það er hvorki minn hagur né þeirra að árangri sé ekki náð.

⭐️ FARINN ⭐️Það losnaði einn tími á morgun kl 15 🙂 hægt að bóka inn á noona.is/vonarland eða senda mér skilaboð Næsti la...
11/05/2026

⭐️ FARINN ⭐️
Það losnaði einn tími á morgun kl 15 🙂 hægt að bóka inn á
noona.is/vonarland eða senda mér skilaboð

Næsti lausi tími er svo föstudaginn 29.maí 💜

Kv Sirrý

Bókaðu þjónustu eða borð hjá uppáhalds fyrirtækjunum þínum, hvenær sem er og hvar sem er inni á noona.is eða Noona appinu.

⭐️ Nýjung í Vonarlandi ⭐️Eleonora nuddari mun bjóða upp á sogæðanudd alla sunnudaga ásamt því að hægt er að panta hjá he...
11/05/2026

⭐️ Nýjung í Vonarlandi ⭐️

Eleonora nuddari mun bjóða upp á sogæðanudd alla sunnudaga ásamt því að hægt er að panta hjá henni í heitsteina nudd og slakandi nudd með Tíbetískum söngskálum.

Sogæðanudd er mild og taktföst nuddaðferð sem miðar að því að örva sogæðakerfið og hjálpa líkamanum að losa út umframvökva og úrgangsefni. Meðferðin er framkvæmd með léttum og rólegum strokum sem fylgja náttúrulegu flæði sogæðanna um líkamann.

Sogæðakerfið gegnir mikilvægu hlutverki í ónæmiskerfi líkamans og hjálpar til við að flytja burt vökva, bólgur og eiturefni úr vefjum. Þegar flæði kerfisins hægist getur myndast bjúgur, þreyta eða stífleiki. Sogæðanudd getur því stuðlað að betri vökvajafnvægi og aukinni vellíðan.

Margir leita í sogæðanudd til að:

* draga úr bjúg og bólgum
* auka slökun og minnka streitu
* styðja við bata eftir aðgerðir eða meiðsli
* létta á þungum og þreyttum fótum
* örva blóð- og sogæðaflæði

Meðferðin er yfirleitt mjög róandi og margir upplifa djúpa slökun á meðan á henni stendur. Algengt er að finna fyrir auknum léttleika í líkamanum eftir tímann og sumir finna einnig fyrir meiri orku og betri svefni.

Sogæðanudd hentar flestum, en í sumum tilfellum þarf að ráðfæra sig við lækni áður en meðferð er hafin, til dæmis ef um er að ræða alvarlega hjarta- eða nýrnasjúkdóma, sýkingar eða ákveðin heilsufarsvandamál.

Markmið sogæðanudds er að styðja náttúrulega hreinsun og jafnvægi líkamans á mildan og náttúrulegan hátt.

ATH svona meðferð á einstaklega vel við fólk með sogæðabjúg (Lipoedema)

Hægt er að panta tíma á noona.is/vonarland

Suvorova Eleonora hefur hafið störf í Vonarlandi. Hún býður upp á meðferð í heitsteinanuddi ásamt nuddi þar sem hún nota...
04/03/2026

Suvorova Eleonora hefur hafið störf í Vonarlandi. Hún býður upp á meðferð í heitsteinanuddi ásamt nuddi þar sem hún notar söngskálar frá Tîbet en þær framkalla bylgjur sem taldar eru styðja við heilun líkamans. Báðar þessar meðferðir veita mjúkt nudd. Eleonora kemur frá Póllandi og rak þar sína eigin meðferðarstofu ásamt því að hafa verið með stofu í Úkraínu. Hún hefur undanfarin ár starfað sem nuddari á Hótel Selfossi og á Líf Kírópraktík. Hún er með menntun frá Training Center for Therapeutic Massage and Manual Therapy í Warsaw ásamt því að hafa tekið 4.stigs söngskála námskeið hjá Peter Hess - Polish Academy.

Eleonora er sjálfstætt starfandi og býður upp á tíma á sunnudögum milli kl 9:00 og 20:00 í Vonarlandi. Hægt er að senda henni skilaboð eða hringja í síma 791-9052

🟡 Ökklastífleiki og áhrif hans á líkamlega heilsu 🟡 Þegar fólk kemur til mín með t.d. mjaðmaverki þá er eitt af því fyrs...
12/02/2026

🟡 Ökklastífleiki og áhrif hans á líkamlega heilsu 🟡

Þegar fólk kemur til mín með t.d. mjaðmaverki þá er eitt af því fyrsta sem ég geri að athuga með ökklaliðleikann.
Ástæðan fyrir því er sú að stífleiki í ökklum getur haft svo víðtæk áhrif á stoðkerfið og verið undirrót margra líkamlegra vandamála annara en þeirra sem eru við fótinn sjálfann.
Ökklinn gegnir lykilhlutverki í hreyfikeðju líkamans þannig að skert hreyfigeta þar getur leitt til rangs álags annars staðar.

Helstu áhrif stífleika í ökklum;
- Óeðlilegt göngu-og hlaupamynstur sem getur ýtt undir álagi í hné, mjaðmir og mjóbak.
- Aukin meiðslahætta á t.d. hnjámeiðslum (krossbandasliti), beinhimnubólgu á sköflung, plantar fascitis (verkjum á il), slæmum sinabólgum á fæti, tognunum og fl.
- Skert jafnvægi og stöðugleiki með aukinni fallhættu og seinkuðu viðbragði á ójöfnu undirlagi.
- Verri frammistaða í íþróttum og hreyfingu. Takmarkanir á dýpt hnébeygju, stökkkraft, hraðabreytingar og sprettgetu.
- Býr til aukið álag upp eftir líkamanum með því að takamarka önnur liðamót. Þetta veldur auknu álagi á mjóbak, spennu í lærum og mjöðmum, breyttri líkamsstöðu.

Helstu orsakir ökklastífleika eru:
Kyrrseta - ökklameiðsl og röng meðhöndlun - mikil notkun óæskilegs skóbúnaðar eins og td. hárra hæla og skófatnaðar sem er löngu úr sér genginn eða xtra þröngir.

Einfalt hreyfipróf til að athuga ökklaliðleika;
1. Stattu berfættur upp að vegg.
2. Hafðu tær um 5-10cm. frá veggnum
3. Haltu ilinni alveg niðri
4. Reyndu að snerta vegginn með hnénu án þess að hællinn lyftist.
Meira en 10cm frá vegg = mjög góð hreyfigeta
5-8 cm. frá vegg = ásættanlegt
minna en 5 cm = skert hreyfigeta.

Æfingar til að bæta hreyfanleika ökkla;
1) Ökklateygja við vegg - settu annan fótinn aftur, haltu hæl í gólfi, hallaðu þér fram þar til þú finnur teygju í kálfa. Haltu stöðunni í 30-45 sek og endurtaktu 2-3x bæði með læstu hné og beygðu.

2) Hné að vegg liðleikaþjálfun - sama staða og hreyfiprófið nema núna er hnénu þrýst mjúklega að vegg og til baka. Hællinn má ekki lyftast. Endurtekið 10-15 hvor fótur.

3) Ökklaliðlosun - lyftu fæti frá gólfi, snúðu hæga hringi 10x réttsælis og 10x rangsælis.

Gangi ykkur vel :)

Flestir sem koma til mín í meðferð eru með verki einhvers staðar sem hafa hrjáð þá til lengri eða styttri tíma. Þá er na...
03/02/2026

Flestir sem koma til mín í meðferð eru með verki einhvers staðar sem hafa hrjáð þá til lengri eða styttri tíma. Þá er nauðsynlegt að gera hreyfipróf ásamt því að meta stöðuna á líkamanum og fara yfir áfallasögu en við höfum öll lent í áföllum sem geta átt þátt í verkjum og vanlíðan.
Mig langar að upplýsa ykkur um þessi helstu verkjasvæði og hvernig er hægt að létta á þeim eða jafnvel laga með æfingum og réttri líkamsstöðu.

Piriformis syndrome - Piriformis er frekar lítill vöðvi sem festist efst á lærlegg öðru megin og á setbeini hinu megin. Hann hjálpar til við halda stöðugleika á mjöðm og færa til og frá fótleggi. Þegar hann stífnar óeðlilega mikið, fær krampa eða verður ofvirkur vegna td skyndilegs álags, langvarandi setu, ofálags í æfingum, skekkju í mjöðm og fl. myndast oft verkir sem verða til þess að allar hreyfingar á mjaðmasvæði eru sársaukafullar. Hann getur þrýst á settaug (Siatica) sem er stór taug sem fer í gegnum mjaðmasvæði með tilheyrandi verkjum á því svæði, leiðniverki á rasssvæði og jafnvel niður í fótlegg ásamt því að geta hreinlega átt erfitt með að finna fyrir fullum styrk í fótlegg og misst hann undan sér. Það sem ýtir undir piriformis syndrome verki er til dæmis;
- Langvarandi seta
- Langar göngur í einu og þá helst margar tröppur
- Sitja með krosslagðar fætur
- Sofa á hliðinni án þess að hafa stuðning milli fótleggja
- Löng og erfið hlaup/hjólreiðar
- Slæm líkamsstaða
- Of mikil þyngd á lyftingaræfingum ásamt því að ýta líkamanum of langt miðað við getu hverju sinni á æfingum

Það sem best er að gera er að leita aðstoðar þegar verkir fara að versna ásamt því að;
- fá mat á ástandi hjá lækni
- fá aðstoð sjúkraþjálfara
- fá aðstoð heilsunuddara
- stunda liðleikaþjálfun og teygjur í samráði við þjálfara
- nota hita/kælimeðferð
- sofa með hátt undir hnjám og góðan kodda milli læraleggja ef sofið er á hliðinni
- leyfa líkamanum að slaka daglega
- fara í stuttar göngur nokkrum sinnum á dag
- sleppa langvarandi setum

Það tekur tíma að ná að vinna á vöðvum sem "hafa farið út af sporinu" og er mikilvægt að hlusta á líkamann við allar athafnir daglegs lífs.

ATH Þessar upplýsingar eru hluti af þeim ráðleggingum sem gott er að styðjast við.

Gangi ykkur vel

Eitt það mikilvægasta í lífsgæðakapphlaupinu er að viðhalda hreyfanleika liðamóta eins lengi og mögulegt er. Liðleiki mi...
24/01/2026

Eitt það mikilvægasta í lífsgæðakapphlaupinu er að viðhalda hreyfanleika liðamóta eins lengi og mögulegt er. Liðleiki minnkar hættuna á byltum og falli með tilheyrandi rúmlegu til lengri tíma. Verum dugleg að stunda liðleikaþjálfun eins lengi og skrokkurinn leyfir og þannig aukum við lífsægði okkar til muna :)
Hér er hægt að skoða hvernig liðamótin ættu að hreyfast ef allt er eðlilegt :) Hvet ykkur til að taka smá próf á ykkur sjálfun.

Kæru viðskiptavinir, gamlir og nýjir. 1.janúar næstkomandi breytist verðskráin í Vonarlandi. Hækkun er óhjákvæmileg þar ...
21/12/2025

Kæru viðskiptavinir, gamlir og nýjir. 1.janúar næstkomandi breytist verðskráin í Vonarlandi. Hækkun er óhjákvæmileg þar sem rekstarkostnaður hefur hækkað töluvert á síðast-liðnu einu og hálfa árinu. Ég legg mig þó alltaf fram um að halda verðlagi sanngjörnu til að sem flestir hafi kost á að koma og sækja sér þjónustuna😊

Mig langar að bjóða ykkur upp á að kaupa 5 eða 10 skipta kort á "gamla" verðinu fram að áramótum sem hægt er að nýta út árið 2026 💫

Verðin á kortunum eru eftirfarandi:
5 skipti eru á 70.000.- (55 min) og 80.000.- (75 min)
10 skipti eru á 140.000 (55 min) og 160.000 (75 min)

Til að kaupa kort er best að senda á mig skilaboð í gegnum þessa síðu.

Hlakka til að halda áfram að aðstoða ykkur við að efla eða bæta heilsuna á komandi tímum :)

kv. Sirrý

Gjafabréf í Vonarland Heilsustofu gæti verið besta gjöfin 🙂 ☃️ Keyri heim öll gjafabréf á Árborgarsvæðinu í desember ef ...
02/12/2025

Gjafabréf í Vonarland Heilsustofu gæti verið besta gjöfin 🙂
☃️ Keyri heim öll gjafabréf á Árborgarsvæðinu í desember ef óskað er eftir því ☃️

Nú styttist í að María Sigurjónsdóttir og hennar systur keppi fyrir hönd Íslands á  Special Olympics í kraftlyftingum í ...
05/11/2025

Nú styttist í að María Sigurjónsdóttir og hennar systur keppi fyrir hönd Íslands á Special Olympics í kraftlyftingum í Rúmeníu. Keppnin hefst 15.nóvember og hefur María verið dugleg að koma í Vonarland og fá viðeigandi meðferð til að nà að toppa hàmarksgetu à sjàlfan keppnisdaginn 🤩 gangi þér og ykkur systrum vel elsku María - við fylgjumst með frá Selfossi og sendum ykkur kraftastrauma 🌸 💪🏻

Vegna forfalla er laus tími á morgun kl 10:30 🙂 hægt að bóka inn á www.noona.is/vonarland🌸
28/10/2025

Vegna forfalla er laus tími á morgun kl 10:30 🙂 hægt að bóka inn á www.noona.is/vonarland🌸

Bókaðu þjónustu eða borð hjá uppáhalds fyrirtækjunum þínum, hvenær sem er og hvar sem er inni á noona.is eða Noona appinu.

Address

Austurvegur 10
Selfoss
800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vonarland Heilsustofa posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Vonarland Heilsustofa:

Share