Ljósmæðrafélag Íslands

Ljósmæðrafélag Íslands Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Ljósmæðrafélag Íslands, Safnatröð 3, Reykjavík.

Ljósmæður hafa haft nóg að gera júlí 🥰Það má bæta við að fleiri fæðingum fylgir aukin mæðravernd og sængurlega sem hefur...
06/08/2026

Ljósmæður hafa haft nóg að gera júlí 🥰

Það má bæta við að fleiri fæðingum fylgir aukin mæðravernd og sængurlega sem hefur þannig áhrif á allar ljósmæður hvar sem þær starfa💕👣

Já þetta er spurning sem við ljósmæður hæfum velt töluvert fyrir okkur enda núverandi húsnæði löngu sprungið 😟Takk Gúa G...
18/07/2026

Já þetta er spurning sem við ljósmæður hæfum velt töluvert fyrir okkur enda núverandi húsnæði löngu sprungið 😟
Takk Gúa Guðrún Gunnlaugsdóttir fyrir þessa grein.

Flestir gera líklega ráð fyrir að þegar nýr Landspítali opni fylgi því sjálfkrafa ný og nútímaleg fæðingardeild. Þegar fólk heyrir orðin „nýtt þjóðarsjúkrahús“ sér það fyrir sér betri aðstöðu fyrir alla skjólstæðinga sem þangað leita, þar á meðal fæðandi ...

Og okkur berast svo góðar fréttir að norðan líka  🥰 en hún Sía okkar hefur verið skipuð í stöðu prófessors við Háskólann...
02/07/2026

Og okkur berast svo góðar fréttir að norðan líka 🥰 en hún Sía okkar hefur verið skipuð í stöðu prófessors við Háskólann á Akureyri.
Hjartanlega til hamingju Sigríður Sía 💕við ljósmæður erum svo stoltar og það er dásamlegt hvað okkar fag er að eflast.
Þrjár ljósmæður skipaðar í stöðu prófessora nú í júlí 2026!

Tvö í stöðu prófessors og sjö í stöðu dósents

Við óskum okkar konum og nú prófessorum við HÍ Berglind Hálfdánsdóttir og Emma Marie Swift hjartanlega til hamingju 🥰Okk...
01/07/2026

Við óskum okkar konum og nú prófessorum við HÍ Berglind Hálfdánsdóttir og Emma Marie Swift hjartanlega til hamingju 🥰
Okkar litla stétt getur svo sannarlega verið stolt af því að eiga fleiri prófessora í ljósmóðurfræðum.

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Undir yfirskriftinni   var ráðstefna   sett i dag við hátíðlega athöfn. Yfir 3000 ljósmæður frá rúmlega 100 löndum saman...
14/06/2026

Undir yfirskriftinni var ráðstefna sett i dag við hátíðlega athöfn. Yfir 3000 ljósmæður frá rúmlega 100 löndum samankomnar. 🥰kraftur - samstaða - gleði og væntumþykja 💕

Anika Noack var fánaberi fyrir okkar hönd og stóð sig með miklum sóma 🥰🇮🇸

Aðalfundi Alþjóðasamtaka ljósmæðra ICM lauk i gær. Alison Eddy frá Nýja Sjálandi var kosin nýr forseti og Lia Brigante v...
13/06/2026

Aðalfundi Alþjóðasamtaka ljósmæðra ICM lauk i gær. Alison Eddy frá Nýja Sjálandi var kosin nýr forseti og Lia Brigante var endurkjörin yfir Evrópudeildinni. Ný skjöl voru samþykkt, vinnusmiðja um framtíðar áherslur samtakanna, fundur Evrópudeildarinnar ofl. Þrír langir en skemmtilegir dagar sem skilja mikið eftir fyrir okkur til að fara heim með.

Ljósmæður á Norðurlöndum senda kveðjur frá Lisabon frá aðalfundi alþjóðasamtaka ljósmæðra ICM International Confederatio...
12/06/2026

Ljósmæður á Norðurlöndum senda kveðjur frá Lisabon frá aðalfundi alþjóðasamtaka ljósmæðra ICM International Confederation of Midwives

11/06/2026

Þann 10.júní veitti Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra viðtöku sérstakri lýðheilsuhvatningu til stjórnvalda:

Breiðfylking heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka hvetja alþingismenn og ráðherra til að standa með samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um einkasölu ÁTVR á áfengi. Í tilefni svara ríkisstjórnarinnar til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) þann 21. apríl sl. og þess að nú í júní eru liðin 6 ár frá kæru ÁTVR á hendur netsölu áfengis hvetur breiðfylking heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka stjórnvöld til að standa með samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um einkasölu ÁTVR á áfengi.

Félögin fagna því að í svörum ríkisstjórnarinnar til ESA er því komið skýrt á framfæri að það viðskiptamódel netsölu áfengis, sem tekist hefur verið á um á Íslandi síðustu árin, er ólöglegt að mati ríkisstjórnarinnar. Héraðsdómur Reykjaness komst að sömu niðurstöðu þann 8. apríl sl.

Fyrir 6 árum, þann 16. júní 2020, kærði ÁTVR slíka netsölu og er það áhyggjuefni hve seint hefur gengið að fá niðurstöðu í mál er varða mikilvæga lýðheilsu-og samfélagshagsmuni. Félögin lýsa ánægju með að í drögum að stefnu í áfengis-og vímuvarnarmálum til 2035 taki heilbrigðisyfirvöld mið af áherslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um að draga úr skaðlegri notkun áfengis með gagnreyndum forvarnaraðgerðum, en skýrsla stofnunarinnar frá 2025 sýnir að áframhaldandi einkasala ríkisins á áfengi er mikilvægt lýðheilsumál. Félögin ítreka fyrri áskorun breiðfylkingar félaga heilbrigðisstétta, forvarnarsamtaka og fleiri til yfirvalda um að bregðast við yfirstandandi lýðheilsuógn vegna stóraukinnar netsölu áfengis frá 26. ágúst 2024. Þá er sparnaðarráð þeirra, Verum hagsýn í ríkisrekstri – sparnaðarráð frá breiðfylkingu heilbrigðisstétta, forvarnarsamtaka ofl., sem birt var í samráðsgátt þann 21. janúar 2025, ítrekað.

Að hvatningunni standa

· Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
· Félag lýðheilsufræðinga
· Ljósmæðrafélag Íslands
· Læknafélag Íslands
· Sálfræðingafélag Íslands
· Sjúkraliðafélag Íslands
· Félagsráðgjafafélag Íslands
· Lyfjafræðingafélag Íslands
· Iðjuþjálfafélag Íslands
· Þroskaþjálfafélag Íslands
· Félag sjúkraþjálfara
· Félag áfengis- og vímuefnaráðgjafa
· SÁÁ
· Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu
· Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum
· IOGT á Íslandi
· SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum

Okkur þætti mjög vænt um það ef þið hjálpið okkur að safna undirskriftum! Síðasti dagurinn er laugardaginn 13 júni 🙏 og ...
09/06/2026

Okkur þætti mjög vænt um það ef þið hjálpið okkur að safna undirskriftum! Síðasti dagurinn er laugardaginn 13 júni 🙏 og það væri svo frábært ef við náum milljón undirskriftum

Koma svo - endilega að fá fólkið i kring um ykkur líka með 🥰 takk takk

We work with midwives and midwives’ associations globally to ensure that women and gender diverse people have access to a midwife’s care before, during and after childbirth.

Address

Safnatröð 3
Reykjavík
170

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ljósmæðrafélag Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Ljósmæðrafélag Íslands:

Shortcuts

Share