Fjarðarheiðargöng

Fjarðarheiðargöng Minningarsíða um samgönguverkefni. Við viljum göng.

05/08/2026

Skoðanir eru skiptar meðal Austfirðinga á forgangsröðun jarðganga í nýrri samgönguáætlun og veltur afstaðan á því hvar fólk býr. Heilt yfir virðist stærri hluti íbúa svæðisins vera ósáttur en sáttur við tillögu innviðaráðherra sem Alþingi staðfesti að lokum.

Flott mynd í boði Austurbrúar af Baugi Bjólfs.
29/07/2026

Flott mynd í boði Austurbrúar af Baugi Bjólfs.

Big thanks toStefán Ómar Stefánsson van Hagen, Sigrun Ingibjorg Johannsdottirfor all of your support! Congrats for being...
15/07/2026

Big thanks to

Stefán Ómar Stefánsson van Hagen, Sigrun Ingibjorg Johannsdottir

for all of your support! Congrats for being top fans on a streak 🔥!

15/07/2026

Tekið af Linkdin síðu Jónínu Brynjólfsdóttur;

Sveitarstjórn Múlaþings bókaði eftirfarandi á síðasta fundi sínum sem haldinn var á Seyðisfirði um miðjan mánuðinn. Þá var snjór og leiðindafærð á heiðinni, eins og verður í kvöld og nótt.

"Heimastjórn Seyðisfjarðar og sveitarstjórn Múlaþings fara þess á leit við innviða- og fjármála- og efnahagsráðherra að þeir heimili Vegagerðinni að hefja undirbúning útboðs vegna Fjarðarheiðarganga.

Fjarðarheiðargöng eru næstu göng og tilbúin til framkvæmda en biðröðin eftir jarðgöngum um land allt er löng. Nauðsynlegt er að stjórnvöld sýni að það er raunverulegur vilji að leysa þann brýna samgönguvanda og taka nú þegar ákvarðanir sem binda endi á það alvarlega ástand sem ríkt hefur í samgönguúrbótum vegna rofs í jarðgangagerð undanfarin ár."
Mikilvægt er að rjúfa kyrrstöðu í gangnagerð á Íslandi og það er ekki eftir neinu að bíða.

Það er í raun nauðsynlegt að unnið sé að a.m.k. tveim göngum í senn næstu árin til að vinna á uppsafnaðri þörf víðsvegar um landið. Til þess að svo sé hægt er ekki hægt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að við verðum að ræða gjaldtöku í göng, öll göng.

Sú umræða er erfið, eðlilega, en við sem bíðum og þurfum nauðsynlegar samgöngubætur erum vitaskuld til í umræðuna. Þau nærsamfélög sem hafa ekki þurft að greiða fyrir notkun á sínum innviðum eru ekki eins viljug til samtalsins.

En það verður ekki framhjá því litið nú þegar samgönguáætlun telur fjölda gangna, og þörf á því að lengja listann, að þá verðum við að horfast í augu við það að eina leiðin til að tryggja uppbyggingu þeirra og til að flýta framkvæmdum er að rukka í þau göng sem við höfum nú þegar um allt land.
Fjarðarheiðargöng skapa ekki tekjur fyrr en þau eru tilbúin.

Þetta kallar maður að smjaðra í orði en svíkja á borði Ekki er þetta í samræmi við niðurstöðu atkvæðagreiðslu á Alþingi....
29/06/2026

Þetta kallar maður að smjaðra í orði en svíkja á borði Ekki er þetta í samræmi við niðurstöðu atkvæðagreiðslu á Alþingi. Vonandi verður meðferð Viðreisnar á EU ekki með sambærilegum hætti.

Í kosningabaráttunni 2024 talaði ég ítrekað fyrir því að Fjarðarheiðargöng yrðu næstu jarðgöng landsins. Ég gerði málið að aðalefni í jómfrúarræðu minni á Alþingi og hef haldið því á lofti síðan – í þingsal, á fundum fyrir austan og í samtölum við samstarfs...

Það mætti alveg geta þess hvaðan þessi þyrla er að koma.
29/06/2026

Það mætti alveg geta þess hvaðan þessi þyrla er að koma.

Nokkuð óvenjuleg sjón blasti við gestum Vök Baths seint í morgunn þegar í viðbót við fjölda bifreiða á plani heilsulindarinnar lenti þar heil þyrla með gesti sem þyrsti í þjónustuna. Slíkt hefur aðeins verið að færast í vöxt að sögn framkvæmdastjórans.

20/06/2026

Heimastjórn.

Fjarðarheiðargöng hafa ítrekað lagt áherslu á öryggisþáttinn við að hafa jarðgöng sem útgönguleið þegar heiðin er ófær s...
20/06/2026

Fjarðarheiðargöng hafa ítrekað lagt áherslu á öryggisþáttinn við að hafa jarðgöng sem útgönguleið þegar heiðin er ófær sem er nánast daglegt brauð á Seyðisfirði að vetri til (og oftar😃). Hér fjallar Austurglugginn m.a. í viðtali við Hildi Þórisdóttur um það þegar hún þurfti sjálf að taka að sér ljósmóður hlutverk og taka á móti syni sínum með aðstoð eiginmannsins vegna ófærðar á Fjarðarheiði.

Hildur Þórisdóttir, fráfarandi sveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþingi, upplifði sérstaka stund þegar hún fæddi son sinn heima á Seyðisfirði í óveðri og ófærð. Hún segir atvikið undirstrika þá gríðarlegu hættu sem íbúum og heilbrigðisstarfsfólki er stefnt í án Fjarða...

Þó bardagi hafi tapast heldur stríðið áfram. Hér er barist með hug og hönd.  Takk fyrir eljuna. Við gefumst aldrei upp.
19/06/2026

Þó bardagi hafi tapast heldur stríðið áfram. Hér er barist með hug og hönd. Takk fyrir eljuna. Við gefumst aldrei upp.

Samgönguáætlun var nýlega samþykkt af Alþingi. Það voru gríðarleg vonbrigði fyrir þau okkar sem hafa fylgt Fjarðarheiðargöngum eftir og kynnt okkur til þrautar þá gríðarlegu kosti sem fylgja framkvæmdinni.

17/06/2026

Þar fékk hann sína 30 silfur peninga.

Address

Fjarðarheiði
Seyðisfjörður
710

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fjarðarheiðargöng posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share