08/06/2026
SVEITARSTJÓRI
Mýrdalshreppur leitar að öflugum leiðtoga í starf sveitarstjóra.
Leitað er að kraftmiklum, jákvæðum og drífandi einstaklingi sem er tilbúinn að vinna að skemmtilegum og krefjandi verkefnum.
Framundan eru stór og spennandi verkefni í ört vaxandi fjölmenningar samfélagi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
° Daglegur rekstur og ábyrgð á framfylgd stefnu sveitarstjórnar
° Náið samstarf við sveitastjórn og nefndir, undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum
° Annast samskipti við íbúa, stofnanir, fyrirtæki og önnur sveitarfélög og gætir hagsmuna sveitarfélagsins út á við
° Ábyrgð á stjórnsýslu, stefnumótun og mannauðsmálum
° Vinna að hagsæld svæðisins
° Önnur verkefni í samstarfi við sveitarstjórn
Menntunar- og hæfniskröfur
° Háskólamenntun sem nýtist í starfi
° Reynsla af rekstri, stjórnun, fjármálum, stefnumótun og mannauðsmálum
° Góð þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
° Brennandi áhugi á byggðamálum, eflingu atvinnulífs og samfélagsins
° Mikil færni í mannlegum samskiptum
° Frumkvæði, leiðtogahæfni og lausnamiðuð hugsun
° Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
° Reynsla af störfum á sveitastjórnarstigi æskileg
Sótt er um starfið á www.mognum.is
Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; [email protected] og Telma Eiðsdóttir; [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 19. júní 2026
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
https://www.vik.is/is/allar-frettir/myrdalshreppur-leitar-ad-oflugum-leidtoga-i-starf-sveitarstjora
Leitað er að kraftmiklum, jákvæðum og drífandi einstaklingi sem er tilbúinn að vinna að skemmtilegum og krefjandi verkefnum