01/07/2026
Til hamingju með aldarafmælið, Landhelgisgæsla Íslands – 100 ár í dag! 🇮🇸⚓
Þann 1. júlí 1926 tók íslenska ríkið formlega við rekstri björgunarskipsins Þórs af Björgunarfélagi Vestmannaeyja, og sá dagur markar stofnun Landhelgisgæslu Íslands. Í dag eru því liðin 100 ár – og það er engin tilviljun að sagan hefjist einmitt hér í Eyjum.
Það voru stórhuga Vestmannaeyingar sem stofnuðu Björgunarfélag Vestmannaeyja árið 1918, eftir ítrekuð slys og mannskaða í vélbátaútgerðinni, og söfnuðu fé til að eignast björgunarskip. Haustið 1919 keypti félagið danska skipið „Thor", sem var íslenskað og hlaut nafnið Þór. Skipið kom til Vestmannaeyja 26. mars 1920 og varð fyrsta varðskip þjóðarinnar – sinnti bæði björgun Eyjabáta og eftirliti með veiðum erlendra togara, og árið 1924 var sett á það fallbyssa.
Frumkvæði og fórnfýsi Eyjamanna lagði með öðrum orðum beinan grunn að stofnun Landhelgisgæslunnar, og þessi tengsl hafa haldist sterk alla tíð síðan – Vestmannaeyjar voru meðal annars fyrsti viðkomustaður björgunarþyrlunnar TF-LÍF árið 1995 og núverandi varðskips Þórs árið 2011.
Við í Björgunarfélagi Vestmannaeyja sendum starfsfólki Landhelgisgæslunnar, fyrr og nú, okkar hlýjustu kveðjur og innilegustu þakkir fyrir ómetanlegt starf í þágu sjófarenda
og landsmanna allra í heila öld.
Þökkum frábært samstarf í eina öld
Til hamingju með daginn öll.
Björgunarfélag Vestmannaeyja. Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard