15/06/2026
Það fyllir okkur stolti að fá að vera hluti af þessu mikilvæga samfélagsverkefni heilbrigðisþjónustu á Íslandi 💙
Afhending nýs da Vinci aðgerðarþjarka til Landspítala er hluti af vegferð sem hófst árið 2015 þegar fyrsti aðgerðarþjarkinn kom til Íslands. Fyrsta aðgerðin með þjarkanum markaði tímamót í skurðlækningum á Íslandi og opnaði nýja möguleika fyrir bæði lækna og sjúklinga.
Árið 2023 varð enn eitt mikilvæga framfaraskrefið tekið þegar da Vinci Xi leysti Si þjarkann af hólmi. Innleiðing hins nýja og uppfærða skurðarþjarka markaði áframhaldandi þróun þjarkastuddra skurðaðgerða á Íslandi og styrkti enn frekar möguleika lækna til að veita sjúklingum framúrskarandi meðferð.
Nýi da Vinci Xi skurðarþjarkinn kemur nú til viðbótar við þann Xi þjarka sem fyrir er á Landspítala. Mikil aukning hefur orðið í notkun þjarkastuddra skurðaðgerða á undanförnum árum og mun nýi þjarkinn auka afköst, stytta biðtíma og gera enn fleiri sjúklingum kleift að njóta ávinnings af hátæknivæddri meðferð.
Við erum þakklát fyrir það traust sem okkur hefur verið sýnt og stolt af því að fá að leggja okkar af mörkum til áframhaldandi framþróunar íslenskrar heilbrigðisþjónustu.
Nýverið var haldin móttaka í Hringsal þar sem styrktaraðilum var þakkað fyrir þeirra framlag til kaupa á nýjum aðgerðarþjarka fyrir Landspítala.