Seiglan

Seiglan Seiglan er virknimiðstöð fyrir fólk sem greinst hefur með heilabilunarsjúkdóm og er á fyrstu stigum sjúkdómsins ásamt aðstandendum þeirra.

Það læddist ein lítil villa inn í Seiglufréttir septembermánaðar hjá okkur og leiðréttum við hana hér með; Heilakaffið í...
02/09/2026

Það læddist ein lítil villa inn í Seiglufréttir septembermánaðar hjá okkur og leiðréttum við hana hér með; Heilakaffið í Hæðagarði hefst að sjálfsögðu kl. 17:00 eins og alltaf en ekki 17:30.

Við biðjumst innilegrar afsökunar á þessum mistökum

31/08/2026
💜 5.130.527 sinnum TAKK! 💜Elsku þið öll sem styrktuð okkur í Seigluhópnum í Reykjavíkurmaraþoninu – TAKK!Takk fyrir að l...
25/08/2026

💜 5.130.527 sinnum TAKK! 💜

Elsku þið öll sem styrktuð okkur í Seigluhópnum í Reykjavíkurmaraþoninu – TAKK!

Takk fyrir að leggja Heilahjálp lið og hjálpa okkur að ná árangri sem fór langt fram úr okkar björtustu vonum 💜

Í upphafi settum við okkur það markmið að safna 3.200.000 kr. og fannst okkur, satt best að segja, það vera ansi metnaðarfullt markmið. En þið gerðuð gott betur en að hjálpa okkur að ná því – þið gjörsamlega rústuðuð því! 🤩🥳

Þegar upp var staðið höfðu safnast hvorki meira né minna en 5.130.527 kr. til styrktar Heilahjálp – samtökum um heilabilun

Það er ómetanlegt að finna hversu margir vilja standa með okkur og leggja Heilahjálp lið. Stuðningur ykkar skiptir miklu máli og gerir okkur kleift að halda áfram að efla þjónustu, stuðning og starf í þágu fólks með heilabilun og aðstandenda þeirra

Frá okkar allra dýpstu hjartarótum – 5.130.527 sinnum TAKK fyrir stuðninginn!💜

Stóri dagurinn er runninn upp, í dag hlaupum við Seigluhópurinn í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Heilahjálp - samtök...
22/08/2026

Stóri dagurinn er runninn upp, í dag hlaupum við Seigluhópurinn í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Heilahjálp - samtök um heilabilun (áður Alzheimersamtökin)

Við erum 66 manns í hópnum á aldrinum 13 - 80 ára, þjónustuþegar
Seiglunnar, starfsmenn, sjálfboðaliðar og aðstandendur sem ætlum að fara í Skemmtiskokkið, 10 km og hálft maraþon, hvorki meira né minna 💪

Um leið og við þökkum öllum þeim sem eru búin að heita á okkur (🥰þið eruð frábær og við metum framlag ykkar mjög mikils🥰) hvetjum við ykkur sem eiga nokkrar aukakrónur að leggja þessu góða málefni lið og heita á hópinn

Hægt er að heita á hópinn með því að smella á myndina hér fyrir neðan 👇

Sjáumst í rigningunni í dag, með bros á vör og sól í hjarta 😎

Hlaupa fyrir Alzheimersamtökin (Heilahjálp)

Ætla að hlaupa tíu km til styrktar Seiglunni og Alzheimersamtökunum. Höldum áfram og njótum lífsins.Hægt er að heita á K...
21/08/2026

Ætla að hlaupa tíu km til styrktar Seiglunni og Alzheimersamtökunum. Höldum áfram og njótum lífsins.

Hægt er að heita á Kjartan með því að smella á myndina hér fyrir neðan 👇

Hleypur fyrir Alzheimersamtökin (Heilahjálp)

Ég ælta að hlaupa fyrir Alzheimersamtökin ásamt flottum hóp af fólki og óska eftir ykkar stuðning.Alzheimersamtökin stan...
20/08/2026

Ég ælta að hlaupa fyrir Alzheimersamtökin ásamt flottum hóp af fólki og óska eftir ykkar stuðning.

Alzheimersamtökin standa vörð um fólk sem greinst hefur með heilabilun og fjölskyldur þeirra á einum viðkvæmasta tíma lífsins.

Engin upphæð er of lítil - hvert framlag skiptir máli

Hægt er að heita á Jónas með því að smella á myndina hér fyrir neðan 👇

Hleypur fyrir Alzheimersamtökin (Heilahjálp)

Ísabella ætlar að fara með Seigluhópnum í Skemmtiskokkið til stuðnings Heilahjálp - samtök um heilabilun (áður Alzheimer...
19/08/2026

Ísabella ætlar að fara með Seigluhópnum í Skemmtiskokkið til stuðnings Heilahjálp - samtök um heilabilun (áður Alzheimersamtökin) og leggja sitt af mörkum til þeirra góðu starfa.

Hægt er að heita á Ísabellu með því að smella á myndina hér fyrir neðan 👇

Hleypur fyrir Alzheimersamtökin (Heilahjálp)

Siggi ætlar að skella sér í Skemmtiskokkið í Reykjavíkurmaraþoninu með Seigluhópnum og leggja sitt af mörkum til að styr...
18/08/2026

Siggi ætlar að skella sér í Skemmtiskokkið í Reykjavíkurmaraþoninu með Seigluhópnum og leggja sitt af mörkum til að styrkja Heilahjálp – samtök um heilabilun (áður Alzheimersamtökin).

Siggi verður ekki einn á ferð því með honum í hlaupið fer afastelpan hans, Tinna Björk. Saman ætla þau að njóta dagsins, hreyfingarinnar og stemningarinnar – og um leið styðja við mikilvægt starf Heilahjálpar💜

Afi og afastelpa saman á ferð fyrir gott málefni – gerist varla betra!

Hleypur fyrir Alzheimersamtökin (Heilahjálp)

Ég ætla að hlaupa hálfmaraþon í fyrsta skipti á ævinni! Ég hleyp fyrir Heilahjálp - samtök um heilabilun (Alzheimersamtö...
17/08/2026

Ég ætla að hlaupa hálfmaraþon í fyrsta skipti á ævinni! Ég hleyp fyrir Heilahjálp - samtök um heilabilun (Alzheimersamtökin) sem hafa verið okkur fjölskyldunni mikill stuðningur frá því að pabbi greindist með sjúkdóminn fyrir tæpum 2 árum, aðeins 69 ára að aldri. Kærar þakkir þið sem ákveðið styðja okkur!

Hægt er að heita á Hörpu Ósk með því að smella á myndina hér fyrir neðan 👇

Hleypur fyrir Alzheimersamtökin (Heilahjálp)

Address

Suðurgata 41
Hafnarfjörður
220

Opening Hours

Monday 08:30 - 15:30
Tuesday 08:30 - 15:30
Wednesday 08:30 - 15:30
Thursday 08:30 - 15:30
Friday 08:30 - 12:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Seiglan posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share