Við leggjum áherslu á einfaldar og skilvirkar leiðir sem stuðla að rekstrarárangri og starfsánægju. Við veitum ráðgjöf um alla þætti mannauðsstjórnunar.
Meðal þjónustuþátta okkar eru; stefnumótun, innleiðing gilda, vinnuréttur, jafnréttismál, greining á hæfni og fræðsluþörfum, fræðsla og þjálfun, móttaka og þjálfun nýliða, stjórnendaráðgjöf, stjórnendamat, stjórnendaþjálfun, hnitmiðaðar og skilvirkar vinnustaðagreiningar með aðgerðaráætlunum og áreiðanleikakannanir á sviði mannauðsmála.
Ráðgjafar Attentus hafa allir unnið við starfsmannastjórnun í fyrirtækjum. Við þekkjum þannig vel bæði fræði og framkvæmd.
Við leggjum áherslu á náið samstarf við yfirstjórn fyrirtækis. Við viljum gjarnan nálgast verkefnin með því að vinna greiningu á stöðu, gera í kjölfarið tillögur að aðgerðum og aðstoða við framkvæmd og eftirfylgni þeirra. Þannig hámörkum við árangur verkefnis.
Getum við aðstoðað þig? Skoðaðu dæmin um þjónustu og viðfangsefni okkar hér á vefsíðunni okkar www.attentus.is!