20/08/2026
Þriggja vikna grunnnámskeið með Steingrími fyrir karla sem vilja kynnast jóga frá grunni og öðlast verkfæri sem nýtast bæði í daglegu lífi og annarri hreyfingu.
Steingrímur segir eftirfarandi: "Á námskeiðinu förum við yfir helstu undirstöður jógaiðkunar og lærum grunnstöður, öndun og einfaldar æfingar sem bæta hreyfanleika, styrk og líkamsvitund. Sérstök áhersla verður lögð á mjaðmir, bak og axlir – svæði þar sem margir finna fyrir stirðleika, hvort sem hann kemur frá kyrrsetu, íþróttum eða annarri þjálfun."
"Við kynnumst einnig hugmyndafræðinni á bak við jóga og skoðum hvernig iðkunin getur snúist um meira en liðleika og líkamlegar stöður; um athygli, öndun og betri tengingu við eigin líkama."
Námskeiðið verður haldið 14.-28. september á mánudögum og miðvikudögum og kostar 23.900 kr. Tímarnir eru 5 og hver um sig 90 mínútur (20:00-21:30). Markmiðið er að þátttakendur öðlist góðan grunn og nægilegt öryggi til að geta haldið áfram í opna jógatíma að námskeiðinu loknu.
Námskeiðið hentar jafnt þeim sem hafa aldrei stigið á jógadýnu og þeim sem hafa einhverja reynslu en vilja styrkja grunninn.