10/08/2026
Weaving Voice & Spirit ✨
Workshop með Önnu Bariyani (Curawaka)
Uppgötvaðu kraft raddarinnar með Önnu Bariyani, söngkonu, lagahöfundi og hljómsveitarinnar Curawaka.
Anna hefur um árabil ferðast, skapað tónlist og lært af ólíkum menningarheimum og frumbyggjasamfélögum. Í tónlist sinni fléttar hún saman norrænum rótum sínum, áhrifum frá Suður-Ameríku, bæn, náttúru og andlegri iðkun. Röddin hefur þar ávallt verið hennar helsti farvegur til tjáningar og tengingar.
Í þessari umbreytandi vinnustofu leiðir Anna þátttakendur inn í heim raddar, bænar og meðvitaðrar sköpunar. Með söng og fjölbreyttum raddæfingum könnum við ólíkar hliðar raddarinnar og lærum að tengjast henni á dýpri og frjálsari hátt.
Við vinnum með þá hugmynd að „vefja“ saman rödd og anda og leyfa röddinni að verða farvegur fyrir tilfinningar, innsæi, ásetning og innblástur. Við skoðum hvernig hægt er að losa um hömlur, finna okkar eigin sönnu rödd og gefa henni rými til að tjá það sem býr innra með okkur.
Röddin getur verið meira en hljóð. Hún getur verið bæn, sköpun og lækning; leið til að tengjast okkur sjálfum, hvert öðru og einhverju stærra.
Námskeiðið er fyrir alla sem vilja kanna röddina, sköpunarkraftinn og tenginguna sem í henni býr.
Engin fyrri reynsla af söng er nauðsynleg.
Takmarkaður fjöldi plássa í boði.
Hvenar? 22. ágúst, frá kl 14:00 til 17:00
Hvar? Yoga Shala Reykjavík
Verð: 15.000 kr
Skráning og frekari upplýsingar á [email protected]