VERKVIST

VERKVIST VERKVIST verkfræðistofa: innivist, loftgæði, byggingatækni, rakaskemmdir og vistvottun bygginga

Sérfræðingar okkar hjá VERKVIST er leiðandi á sviði rakaástands bygginga, innivistar, rakaskemmda, loftgæða, sjálfbærni, vistvottana og heilnæmi bygginga. Teymið samanstendur af sérhæfðum ráðgjöfum úr húsasmíði, verkfræði, tæknifræði, líffræði og lýðheilsu.

Við höfum fengið Björgu Bjarnadóttur til liðs við okkur sem fagleiðtoga umhverfisvottunar 🎉❤️Björg kemur með sterkan fræ...
14/08/2026

Við höfum fengið Björgu Bjarnadóttur til liðs við okkur sem fagleiðtoga umhverfisvottunar 🎉❤️

Björg kemur með sterkan fræðilegan grunn og alþjóðlega reynslu á sviði
sjálfbærrar mannvirkjagerðar, loftslagsmála og sjálfbærniráðgjafar.

Hún er með B.Sc. í umhverfis￾og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í Engineering for Sustainable
Development frá University of Cambridge.

https://vb.is/folk/bjorg-bjarnadottir-til-lids-vid-verkvist/

Verkvist hefur ráðið Björgu Bjarnadóttur til starfa sem fagleiðtoga umhverfisvottunar.

Frábær dagur á Building Science Summer Camp í Westford, Massachusetts ( Joseph Lstiburek). Þar mætast sérfræðingar í byg...
04/08/2026

Frábær dagur á Building Science Summer Camp í Westford, Massachusetts ( Joseph Lstiburek). Þar mætast sérfræðingar í byggingaeðlisfræði, innivist, líffræði og heilsu með eitt sameiginlegt markmið: að hanna og byggja hús sem hýsa heilbrigt fólk.
Við í VERKVIST leggjum mikla áherslu á endurmenntun, að læra af öðrum sérfræðingum og mynda alþjóðleg tengsl. Þótt byggingar séu ólíkar milli landa og loftslag breytilegt eru lögmál byggingareðlisfræðinnar þau sömu – og því er ómetanlegt að taka þekkingu og reynslu með heim til Íslands. 🇮🇸🏗️🧬

Heimilsskoðanir í sumarfrí 🏠🌅🌞Sérfræðingar VERKVISTAR þurfa, eins og aðrir, að taka sér sumarfrí, hlaða batteríin og saf...
14/07/2026

Heimilsskoðanir í sumarfrí 🏠🌅🌞

Sérfræðingar VERKVISTAR þurfa, eins og aðrir, að taka sér sumarfrí, hlaða batteríin og safna kröftum fyrir verkefni næsta vetrar. Af þeim sökum lokum við tímabundið fyrir nýjar pantanir í heimilisskoðanir og hefjum skoðanir að nýju 15. ágúst.

Á meðan verður hægt að skrá sig á biðlista.

Heimilisskoðanir eru mikilvægur hluti af þeirri þjónustu sem VERKVIST vill veita almenningi. Við vitum að grunur um raka, myglu eða ófullnægjandi loftgæði getur valdið mikilli óvissu og að erfitt getur verið að átta sig á því hvaða skref eigi að taka.

Markmið skoðananna er að aðstoða fólk við að meta stöðuna og taka upplýstar ákvarðanir um mögulegar úrbætur, viðhald eða frekari rannsóknir.

Við þökkum kærlega fyrir skilninginn og hlökkum til að taka aftur á móti bókunum frá og með 15. ágúst.

Sumarkveðja,

Sérfræðingar VERKVISTAR

Það voru að losna 2 pláss hjá okkur í Hallgerðargötu 13. Þeir sem hafa áhuga sendið póst á verkvist@verkvist.is
09/07/2026

Það voru að losna 2 pláss hjá okkur í Hallgerðargötu 13.
Þeir sem hafa áhuga sendið póst á [email protected]

VERKVIST á Indoor Air 2026 í Singapore 🌿Sylgja Dögg sótti Indoor Air 2026 í Singapore fyrir hönd VERKVISTAR til að fylgj...
18/06/2026

VERKVIST á Indoor Air 2026 í Singapore 🌿
Sylgja Dögg sótti Indoor Air 2026 í Singapore fyrir hönd VERKVISTAR til að fylgjast með nýjustu rannsóknum og þróun á sviði innivistar, loftgæða, raka, myglu og heilnæmra bygginga.
Þátttakan var jafnframt framhald af faglegu samtali og tengslum sem urðu til á Healthy Buildings 2025 Europe í Reykjavík, sem VERKVIST tók þátt í að standa að á síðasta ári.

Sem verkfræði- og ráðgjafastofa teljum við mikilvægt að taka virkan þátt í rannsóknum og alþjóðlegu þekkingarsamstarfi.

Það styrkir faglega ráðgjöf okkar, eykur gæði þjónustunnar og er hluti af samfélagslegri ábyrgð okkar.

Við komum heim með nýja þekkingu, innblástur og enn sterkari sýn á mikilvægi heilnæmra bygginga fyrir fólk, heilsu og framtíðina.
Innivist er lýðheilsa — og þekking skapar betri byggingar.

Hvað getum við lært af byggingargöllum — og því sem vel er gert?Við erum þakklát fyrir að verkefnið „Byggingargallar og ...
02/06/2026

Hvað getum við lært af byggingargöllum — og því sem vel er gert?

Við erum þakklát fyrir að verkefnið „Byggingargallar og rakaskemmdir – orsakir þeirra og umfang“ hafi hlotið styrk frá Aski mannvirkjarannsóknarsjóði HMS.

Verkefnið er fyrsta skrefið í að meta með markvissum hætti orsakir galla í nýbyggingum, einkum þeirra sem geta leitt til rakavandamála.

Þetta er mikilvægt neytendamál, en einnig mikilvægt fyrir okkur sem störfum í byggingargeiranum — að átta okkur betur á því hvað fer úrskeiðis, hvers vegna það gerist og ekki síður hvað er vel gert og má byggja áfram á.

Það er mikill styrkur að fá til liðs við verkefnið breiðan hóp fagaðila frá Háskólanum í Reykjavík, Háskóla Íslands, Búseta, RK Design, VERKVIST og fleiri fagaðilum, þar sem saman koma ólík sjónarhorn, reynsla og fagleg þekking þvert á kynslóðir.

Við þurfum betri upplýsingar fyrir markvissari forvarnir sem leiða til betri endingar, gæða og innivistar í byggingum.

Við hlökkum til samstarfsins og til að miðla niðurstöðum þegar fram líða stundir.

Hér eru frekari upplýsingar https://hms.is/askur/utgefid-efni/byggingagallar_og_rakaskemmdir_orsakir



*það vantar nokkra aðila á myndina.

20/05/2026

Address

Hallgerðargata 13 5. Hæð
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 14:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when VERKVIST posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share